25 June 2013

ég er búin að tékka á Sækúnum..

..ég er líka búin að tékka á North Atlantic Row..

Kýrnar eru hópur kvenna sem henti sér út í haf og svamla þar um núna hálf naktar með það eina markmið að koma sér á milli strandlengja...  Row-hópurinn er svo föngulegur hópur karla sem svitnar við árarnar á Auði og ætla að ferðast sögulega leið yfir Atlantshafið sjálfum sér og öðrum til ánægju.

Ég fór í garðinn minn og tók þar til höndum með öðrum garðeigendum....


hreyfing:   ..munda gaffal til að færa til jarðefni..

næring:  ..ofát..

ánægjuefni:  ..sæki afkvæmi 1, afkvæmis II í leikskólann og passa fram eftir nóttu..


bráðum fer ég í sumarfrí....

4 comments:

  1. hvenær syndum við Ermasundið?

    ReplyDelete
  2. ég held að það styttist í það með hverjum degi.....

    Getum við verið sæljón ???

    ReplyDelete
  3. Hafmeyjar eða marbendlar.
    H

    ReplyDelete
  4. Kýrnar eru hafmeyjar en ROW-hópurinn fullfermi af fallegum marbendlum..

    ReplyDelete

þú mátt tala hafrún