01 September 2012

kókosolía

..er eitthvað sem ég er að láta ofan í mig í allt of miklu magni.  Alla vega miðað við hvað ég nenni oft í búð..

Ég var að skríða upp úr sjónum sem mér fannst verulega kaldur um leið og fyrsta táin stakkst á bólakaf ofan í.  Núna klukkutíma síðar eða rúmlega það er líkaminn enn að skjálfa úr kulda.

Ætlar þetta bara aldrei að venjast.....

Það er búið að selja húsið sem ég bý í, svo núna á ég hvergi heima.  Á morgun mun ég því banka upp á hjá Æ-manninum og setjast að hjá honum um aldur og ævi.  Ég vona að hann taki því vel.

Það er gott að þekkja fólk.....

brrr..... mér er of kalt til að láta hugann reika.

3 comments:

  1. Djöfulinn sjálfur, þurfum við þá að flytja ALLT draslið þitt!!!!
    Þú hefðir nú getað sent einhvern sérfræðing í áfallahjálp til að segja mér þessar fréttir!

    ReplyDelete
  2. syntirðu yfir án mín? Reyndar er eins gott að við fórum ekki af stað því þú hefðir örugglega þurft að draga mig yfir.... ökklarnir allt í einu í klessu.

    ReplyDelete
  3. nei.... auðvitað synti ég ekki yfir án þín. Við fræmkvæmum við fyrsta tækifæri.

    ReplyDelete

þú mátt tala hafrún