Þyngd: 75,3 kíló
Hreyfing: ..ætla að skríða upp í rúm og sofa eins og engin sé morgundagurinn, gærdagurinn eða vikan öll..
Næring: avakadó
Ég er eitthvað að missa mig í yfirgengilega þreytu sem veldur vöntun á brosi á andlitið, gleðisnauðum hugsunum í hausnum og líkamlegri vangetu til að hreyfa útlimi í leik eða starfi. Hugsanlega hefur það eitthvað með það að gera að ég er búin að vinna stanslaust í margar, margar vikur ef frá er talinn dagurinn sem ég hjólaði á Þingvelli (sunnudaginn 10.júní).
jan welzl er frá... núna er það karen blixen...
No comments:
Post a Comment
þú mátt tala hafrún