27 May 2012

konan uppi á lofti....

....gerir mig skapstygga þegar mig vantar að þvo þvottinn minn.   Þess á milli kemst ég oftast að raun um að hún er bara eðlileg mannvera rétt eins og ég og þú.  Einstaklingur með sínar vonir og þrár.  Með sinn fortíðarpakka og aðstæður eins og þær eru í núinu.   Rosalega finnst mér gaman að spyrja fólk spurninga og sjá hvað ég fæ að ganga langt inn í einkalífs þess.

Vitið þið hvernig kynlífi nágranna ykkar er háttað..............    ég veit það....... en ég hef náttúrulega líka fyrir því að spyrja.

Toppmaðurinn er asni og veit af því.....   en bara afþví að ég sagði honum það.

7 comments:

  1. Hvað vita nágrannar þínir um þitt kynlíf?
    H

    ReplyDelete
  2. það sem sést og heyrist af þeim lifnaði en persónulega hef ég ekki sagt þeim neitt enda aldrei verið spurð...... ;-)

    ReplyDelete
  3. Jæja, þá veit ég að þú og nágranninn á loftinu eru á einhliða trúnó ;)

    ReplyDelete
  4. á ákveðnum tímapunkti hélt ég að ég væri stjórnandi yfirheyrslu á mjög vafasömum sakborningi..... en það var þegar ég spurði hana hvort hún ætti þá eftir að koma út úr skápnum.......

    ReplyDelete
  5. Og á hún það eftir eða er hún búin að því og kannski komin inn í hann aftur.

    ReplyDelete
  6. ..komin inn í hann aftur..... hún segist líka vera steinhætt þessu, öllu, algjörlega.

    ReplyDelete
  7. Þetta er eitt af því sem er nauðsynlegt að vita um nágranna sína. +
    (ekki orð um það meir)

    ReplyDelete

þú mátt tala hafrún