Ég fékk aðstoð við opnun á fyrstu tveimur kössunum með eldhúsdótinu..... Svo er ég bara að vona að afgangurinn gerist af sjálfu sér.
Ég fékk líka aðstoð við að hugsa um peysu Æ-mannsins sem átti að klárast í febrúar. Áætlun hefur risið um að hún klárist í mars. Mér finnst það gott plan.
Ég fékk líka aðstoð við að komast inn í væntanlegt verkefni við að gefa nemendum einkunn fyrir ritgerð um bók og Ritgerðina.
Auk þess, held ég að ég eigi orðið einn sokk................
Þú hefur fengið hellings aðstoð og þekkir greinilega einhvern sem finnst betra að vinna að þínum málum en sínum eigin ;)
ReplyDeleteVerst ef viðkomandi ætlast svo til að fá greiðann launaðann :o
Mikið er gott að þér verður bara kalt á öðrum fætinum framvegis.
20. mars er jafndægri á vori og mér finnst 19. mars vera góð timasetning fyrir afhendingu Æpeysunnar.
Hvað ertu annars að gera 20.? Vá, það er bara á þriðjudaginn!
jamm gamla.... ég verð í Borgarfirðinum til sex eða sjö þann 20. En þá kem ég og drekk kaffi með þér hvar sem þú verður.....
ReplyDelete