18 October 2014

listamannslíf mitt..

 ..er ekki farið að skila meiri færni ennþá.    ...en ég vona að það komi.

 Æfingin skapar meistarann eins og þar er sagt.

Willowing-Art.
Með Tamara Laporte málaði ég þessi blóm með fingrunum, akríllitum, Crayons,  með pensli, skafað með skaftinu á pensli, smá slettum og smá tilraun til að láta litinn leka til..


Samkvæmt mínum gúrúum í myndlistinni í augnablikinu er gott að gera tilraunir í litar bækur.  

Ég tek mér það til fyrirmyndar.   


Svart-Gesso á blaðið og akríllitirnir mínir sitja á í taumum.


hreyfing:   ...teikna, lita, leika..

næring:   ...c-vítamín..

uppákoma dagsins:   ...afmælisveisla tengdadóttur..

kærleiksverk:   ...taka upp snið á buxum..

2 comments:

  1. Ég kann vel við þessi blóm, það var mikið að þú fékkst þér blómstrandi plöntur.
    H

    ReplyDelete

þú mátt tala hafrún