23 February 2026

Ég er stundum bara lítil gömul kerling

 Það er þegar ég gæti alveg verið nærgætnari við samstarfsfólk mitt.


Og þegar forréttindalíf mitt vefst svo fyrir mér að ég upplifi einn væntanlegar vatnslausan dag sem nánast enda þessarar veraldar...

..ég kemst ekki í sturtu, ég get ekki eldað þegar mig þóknast, ég get ekki undið tusku, ég get ekki sturtuð niður úr klósettskálinni, ég get ekki þvegið mér um hendurnar, ég fæ ekki vatn í kaffiuppáhellingu þegar ég vil og vatnið fyrir vatnslitina mína.  Já og ekki gleyma, það skortir drykkjarvatn í glasið mitt..

Í einn dag, einn dag !!!  Og ég er farin að röfla í hússtjórn...

20 February 2026

Strögl

 Kannski skrifa ég bók sem mun heita ,,að vera drull" 

Hún mun fjalla um það að standa með sjálfum sér og að tínast ekki í frumskógi stafrænnar tækni... ekki það að mér sé eitthvað að takast að sigra svo fögur fyrirheit en ég væri alveg til í það.

Kvöldmaturinn

Ég ætla samt ekkert að standa í þessum skrifum á þessum tímapunkti því ef ég ætla að passa gamla fólkið mitt núna, þýðir það smá setu á bráðamótttöku, innlit á lungnabólguheimili og tíðar hringingar norður fyrir fjall.  Og hugur minn er bundin við að borða holt, hella í mig nægum vökva og að hreyfa mig meira en milli stóls og rúms...

pass!

13 January 2026

Biðin er ekki lengur bið

 Sérfræðingurinn sagði að ég væri í lagi eins langt og það nær, að einhver og eitthvað sé í lagi.   

Hægra augað


Líf mitt mun því halda áfram í sama formi og verið hefur.  Ég mun klára þessa önn við að læra eitthvað sem ég veit ekki hvort ég vil kunna, áfram.   Fara í mínar fjallgöngur, borða grænt og æfa listræna hæfileika þegar tími vinnst til...

Hreyfing:  ..útbúa tjald með 6 ára

Næring:  ..borða íspinna með 6 ára

Lærdómur:  ..þann 6 ára langar í meira dót

Þakklæti:  ..að það skuli vera einn 6 ára í lífi mínu


11 January 2026

Mataræði mitt

 Ég þarf að rumska og fara að gera eitthvað merkilegt með líf mitt...  annað en að taka mynd af hafragrautnum mínum daglega. 



Hreyfing..Hringur í Kringlunni að skoða hugsanlegar afmælisgjafir fyrir 4 ára  og 6 ára
Næring..Hafragrautur, salatskál, afmæliskökur (vegan), popp og sætkartöflubúðingur
Lestur:  ..Þú sem ert á jörðu
Lærdómur:  ..ég lærði fullt af Snjalllausnum og betur á Padlet

Nám, vinna, hreyfing, næring, fjölskylda, vinir, leikir og sköpun.   Núna þarf ég bara að raða þessu upp í eina heild sem virkar fyrir mig...

26 December 2025

Meðaleinkunn átta komma fimm eða nálægt því.

 Nú þarf ég bara að hugsa um það hvort ég haldi áfram í þessu námi eða ekki...

Riddarastjarna

Vil ég vera sjúkraliði með framhaldsmenntun eða hafa diplómagráðu við háskóla ?  
Klárlega er ég til í diplómagráðu en vil ég endilega vera færari í því sem ég er við það að fara að hætta að starfa við vegna aldurs...  
Ég veit það eiginlega ekki.   Ég eiginlega vil dissa þetta nám þ.e.a.s. ég vil segja að það séu svo litlar kröfur að það sé ekkert vit í því og um leið hugsa ég:  ..er þá ekki flott að taka það í æfingarskyni áður en ég sný mér að því að læra eitthvað af viti.
Sem leiðir að spurningunni sem ég á ekkert svar við ..Hvað vil ég kunna..

27 November 2025

Heilabúið hefur þófnað

Með árunum hefur hugsun mín rýrnað.   Ekki það að hún hafi einhvern tíma verið mjög bólgin, en henni hefur farið verulega aftur.  Einu sinni fyrir langa löngu var vitræn geta mín svo lítil að ég mundi ekki einu sinni eftir deginum sem var nýliðin.  Ég gat ekki sagt samferðafólki mínu frá nafninu á bókinni sem ég var að lesa, um hvað hún var eða hver skrifaði hana.  Og einn daginn sat ég við tölvuna á vinnustað og mundi ekki aðgangsorðið inn á tövupóstinn sem ég var vön að opna 20 sinnum á vaktinni.  Þann dag pantaði ég tíma hjá lækni sem sá ekki annað ráð en að sprauta mig með járni og B12.

Í dag er ég í námi hjá háskólanum á Akureyri og þar var ég að lesa texta sem segir að stress / streita hafi tilhneigingu til að hafa þessi áhrif þegar hún hefur undið upp á sig...


Svo núna hef ég snúið mér að núvitundaræfingunum aftur sem ég nældi mér í um árið í endurmenntun háskóla Íslands.   Þegar ég var meira en til í það að gera mitt góða líf betra. 

Anda inn og anda út...   anda inn og anda út...   anda inn og anda út...

19 November 2025

Hvað veit maður svo sem

 Ég fór til augnlæknis sem sagði að eitthvað væri að minnsta kosti öðru auganu mínu og svo henti hún mér í meðferð en sagði jafnframt að við myndum ekki vita hvort meðferðin muni skila árangri fyrr en 13.janúar árið 2026.  Svo ég sit ennþá og bíð...

Á meðan læri ég bara og læri og núna hangi ég yfir Padlet-vegg til að finna út hvernig ég vil nota hann..